Tuesday, February 24, 2009

Útsýnið út um gluggann á bókasafninu


Vorið er að koma tralalalaaaa :) 

Monday, February 23, 2009

Sveittar bollur


Maður missti ekki af bolludeginum í Japan hohoho ;) 

Thursday, February 19, 2009

Nýr félagi

Obama sushi


Ég varð bara að linka inn á þetta blogg hér því mér finnst þetta frekar magnað!

Tuesday, February 10, 2009

Hammari


Var boðið í lunch af Debru um helgina. Ég pantaði mér hamborgarann á myndinni lengst til vinstri
(Dabburuchiisubeekoneggubaaga:) )  


Ooog þetta er það sem ég fékk! hahaha.. þetta var samt góður börger  

Friday, February 06, 2009

Föstudagsát

Við Debra vorum bara eitthvað að hanga á neðstu hæðinni á heimavistinni þegar gamla krúttlega konan sem er húsvörður gengur inn og segir "hæ stelpur, viljiði smakka svínafætur??" Ekki eitthvað sem við áttum von á en hey þetta var þokkalega eitthvað sem ég hafði áhuga á:)
Leit nú ekkert súpervel út enda með tánum og öllu og hver veit hvar þessar tásur hafa verið að traðka.

Debru fannst lyktin af sósunni mjög heillandi og ákvað að prufa.
Þetta er víst svínaandlitið hennar:) 


Sósan var nefnilega þokkalega góð og pínu krydduð en fóturinn var í sjálfu sér bara þykk húð og fita þannig ekkert sem mig langaði til að borða mikið af... 


Þannig til að losna við tásubragðið fórum við út og fengum okkur ljúffengt ramen:) mmm.. ég fékk mér miso-based ramen 


Það var fjall af pipar í rameninu hennar Debru, gott stöff 


Mmmm NAMMI! 

Þrif


Glaður svampur gerir þrifin ánægjulegri 

Monday, February 02, 2009

Vatn vatn vatn


Vatnsfilterskannan sem ég keypti svo ég þyrfti ekki alltaf að bera heim vatn úr búðinni. Auk þess hagkvæmara;) 


Er orðin svo dugleg að drekka vatn og sótti forrit sem fylgdi með vatnsfilternum sem minnir mig á hvenær er kominn tími fyrir annað vatnsglas (já ég veit.. LÚÐI! hehe)