Sunday, August 02, 2009

Monday, June 22, 2009

Tuesday, June 16, 2009

Grænt te bragð...


Æj þeir mega alveg láta kókið í friði, þetta var sko ekki bæting á bragðinu! 

Monday, June 15, 2009

Lifandi skilti


Lágum í grasinu við höfnina í Yokohama í næstum 2 tíma um daginn. Allan tímann var þessi maður á vappi með þetta skilti um að ekki mætti hjóla þarna. Var ekki allavega hægt að setja hann í einhvern töff búning til að þetta sé ekki jafn vandræðaleg vinna fyrir hann? 

Monday, June 08, 2009

Spes


Nú getur þú verið knapi á veðreiðahesti! 

Sunday, June 07, 2009

Saturday, June 06, 2009

Bíóþrenna


Það er alger óþarfi að fá sér franskar með poppi í bíó... en auðvitað stóðst ég það ekki:( 

Monday, May 25, 2009

Bílastæði

 


Ég skil ekki hvernig svona stæði virka...þarf efri bíllinn að bíða þar til neðri bíllinn fer? hmm.. 

Friday, May 15, 2009

Dýrir ávextir

Mér finnst súrt hvað ávextir hérna eru dýrir annars myndi ég borða meira af þeim.
Yenið er núna 1,3 krónur:(
 


3 epli á 498 yen.. ég fæ liggur við tár í augun 

Monday, May 04, 2009

Saturday, May 02, 2009

Nautatunga

Tokum lest i klukkutima i vidbot til Sendai thar sem litla systir Okaasan byr. Sendai er fraegt fyrir steikta nautatungu og bidum vid i 40 min i rod til ad borda a vinsaelum veitingastad. Hun var bragdgod en samt svoldid seig. En eg bjost vid einhverju svakalegu og var med of miklar vaentingar held eg.

Is

Eg og Miya fengum okkur is eftir klifrid. Hun fekk ser kirsuberja og eg smakkadi med graenum baunum (edamame).

Yamadera (Fjallahof)

For i lestarferdalag med Okaasan og Miyu. Komin i Yamagata herad sem tok um 4 tima med venjulegri lest.
Klifrudum um 1000 troppur til ad skoda tetta fjallahof sem er a vitt og breytt i fjallshlidinni.

Friday, May 01, 2009

Purikura (print club)

For ut ad borda med Yayoi vinkonu minni i gaer. Forum svo saman i myndakassa. Eftir tvitugt ert tad ad visu frekar puko her en mer finnst tad svo gaman hehe.

Tuesday, April 28, 2009

Hadegismatur

Vel utilatid sashimi:)

Monday, April 27, 2009

Lestarstodin heima

Er umvafin hrisgrjonaokrum. Saningartiminn er ad byrja svo byrjad er ad fleyta vatni a tha.
Var buin ad gleyma ad lestin gengur bara einu sinni a klukkustund yfir midjan daginn. Svo ef er of hvasst, sem er oft, kemur hun ekki yfir hofud thvi tad er ekkert skjol af nalaegum husum.
Hljomar sad en hun er samt e-d svo kosy hehe.

Gjof fra AFS

Nadi ad snikja thennan bol i gjof eftir helgina:)

Sunday, April 26, 2009

Islensku kosningarnar i sjonvarpinu

Hadegismatur

Magurodon - tunfiskur a hrisgrjonum.

Japanshaf

Eg sakna oft ad sja ekki til hafs i Tokyo.

Friday, April 24, 2009

Ekiben

Shinkansen

Vaaaa hvad eg er fegin ad vera ad fara ad stiga upp i Shinkansen en ekki rutu!
Og meira ad segja okeypis:)

Oh Shingo er alltaf jafn saetur...

Makkurokurosuke

with a twist of Eyrun

Thursday, April 23, 2009

Risa

Ok eg stenst ekki matið, hun Risa er bara of mikið krutt þannig eg varð að deila þessu myndbandi af henni.
Her er hun niðursokkin i að borða jogurt og horfa a uppahaldsþattinn sinn þar sem folk er að syngja og dansa. DULLA!



En ja annars held eg að eg se komin ur bloggfylunni og held eg haldi afram við að henda inn random drasli hingað inn annað slagið.
Svo er eg að fara til Niigata aftur a morgun (jeij!) i boði AFS þar sem eg tek þatt i orientation programmi nuna um helgina, fyrir skiptinema sem komu þangað i mars og var eg alveg til i að gera það gegn friu fari til Niigata með hraðlestinni! ojaaa! er svoo heppin alltaf:) Ætla að nyta mer þetta til að eiga quality time með fjölskyldunni þar til 6.mai og verður þetta seinasta heimsoknin til þeirra aður en eg kem heim til Islands:(

Annars oska eg ykkur Gleðilegs sumars:)

Wednesday, April 22, 2009

Löggubíll


Mér finnst skemmtilegt hvernig ljósin lyftast upp af þakinu  

Tuesday, April 21, 2009

Tré


Rosaleg stærð á þessu tré 


Það er ekki hægt að flýja háhýsin  

Wednesday, April 08, 2009

tilhvers..

Held ég sé búin að týna bloggtilgangnum.. sé til hvað verður

Thursday, March 26, 2009

Utsyni?

Tegar thett er byggt er utsynid naesta hus.

Sunday, March 15, 2009

Heim til Niigata

Ég er farin heim til Niigata í fríinu mínu í svona 1-2 vikur. Hlakka til! Allavega 7 tíma rútuferðar virði! Það er bara svo næs að vera með þeim og svo fæ ég líka að hitta litlu sætu frænku mína hana Rísu sem á lítið systkini á leiðinni :)

Gangan upp á Takao

Þegar ég fór í fjallgönguna um daginn þá fannst strákunum sem plönuðu ferðina mjög sniðug hugmynd að taka með sér borð upp á fjallið. Lágt japanskt borð (kotatsu).

Við hjóluðum fyrst á lestarstöðina.  


Tókum lest í um klukkutíma 


Og lögðum svo af stað upp fjallið 


Svo lentu allir í að þurfa að bera einhvern hluta leiðarinnar.. þessir strákar hnuss! 


Gáfu okkur allavega mandarínur í stoppunum okkar 


450 ára gamalt tré 


Mikið um tröppur dauðans á leiðinni 


Eftir tveggja tíma labb komumst við loks á toppinn. (Þar sem var auðvitað veitingastaður og sjálfsalar) og skelltum upp borðinu 


Nestiii 


Þetta vakti vægast sagt athygli.
Svo var bara að klöngrast aftur niður með þetta blessaða borð. 

Strákarnir sönnuðu svo karlmennsku sína með því að baða sig í ísköldum læk.

Friday, March 13, 2009

Útsýni


Fór í smá fjallgöngu í gær og fékk þetta fína útsýn yfir Fuji-san. 

Wednesday, March 04, 2009

Bækur


Það eru ýmsir athyglisverðir bókatitlar á bókasafninu.  

Monday, March 02, 2009

OH YES I DID! :)


fleiri myndir á feisinu ;) 

Japanska


Fannst fyrirsögnin eiginlega japanska í hnotskurn:) 

Sunday, March 01, 2009

Vorfrííí!

Jæææja, ég er komin í vorfrí þangað til 10.apríl! Er mjöög fegin að þessi önn er búin, þar sem hún var frekar strembinn og maður orðinn svoldið lúinn.
Ég á engan pening til að ferðast neitt en fjárhagurinn er samt orðinn talsvert betri og get ég nú leyft mér hluti aftur:) Held ég hafi aaaldrei verið jafn fátæk eins og núna í janúar og febrúar, ömurlegt alveg hreint. En ég náði allavega að ná endum saman þónokkurn veginn með því að gera gott budget og fylgja því, en það sem var verst að það var alltaf svo lítill peningur fyrir mat og ég át alltaf sama fokking draslið úr 99 kr búðinni og ég var aðallega vansæl yfir því að geta ekki borðað það sem ég vildi og ég þurfti meira að segja að hætta að drekka kók því ég átti ekki fyrir því!
Þegar ég stóð sjálfa mig að því að stela hárnæringu frá herbergisfélögum mínum til skiptis í heila viku var ég alvarlega farin að íhuga að raka af mér hárið því það er stórkostlegur peningur sem sparast við það að þurfa ekki að kaupa sjampó, næringu og gel! þetta eru alveg þúsundkallar!
En þetta er semsagt komið í lag, náði líka að gera díl við alþjóðaskrifstofuna útaf leigunni sem ég þarf að greiða fyrir seinustu 4 mánuðina þannig allt er GÚDDÍGÚDDÍ!:)

En í fríinu ætla ég mér aðallega að væflast um Tokyo og helst borða mikið af góðum mat hvenær sem gefst tækifæri til! ;)

Ég er bara búin að vera í prófum og verkefnaskilum síðustu vikur þannig ég hef ekki verið mikið að stússa og taka myndir nema það að þann 24.feb átti Debra afmæli og fórum við einmitt út að borða af því tilefni:)

Fengum okkur laaaangt hvítlauksbrauð í forrétt, vorum svo hungraðar að við vorum búnar að rífa í okkur allt brauðið en það var eins langt og hendurnar henna gefa til kynna. 


Í forrétt fengum við okkur einnig maríneraðan kolkrabba sem var einkar góður og alltaf jafn skemmtilegur undir tönn 


Ég fékk mér smokkfisksbleks pasta(? þetta var allavega eitthvað smokkfisksdót) Mjög gott en sóðalegt og mæli ég með að vera í svörtum fötum við neyslu þess og allsekki panta það á deiti hehe.. 


Debra fékk sér kjúlla á teini 


Góðar pósur hjá okkur 


Svo fengum við vagna drauma okkar að borðinu eða KÖKUvagninn þar sem við völdum 3 gerðir af kökum hvor. 


Ég fékk mér belgíska súkkulaðiköku (kökuvagnsdaman föndraði þessi sætu hjörtu á diskinn minn) 


og fjólubláa sweet potato köku og rjómakaramelluköku. 


Sneiðarnar voru í raun pínu litlar hehe en alveg fullkominn skammtur. 


delisssjösss