Sunday, November 16, 2008

Gone to Kyoto


Ég er farin í smá ferðalag með Debru í nokkra daga.. fer í kvöld með næturrútu til Kyoto sem tekur 8-9 tíma (stuuuð!) og verðum þar í 3 nætur og 2 nætur í Osaka. Ætlum að skoða okkur um í Kyoto og kíkja á haustlaufin og kíkja líka til Nara og Kobe.

Ég er jafnvel að hugsa um að endurnýja kynnin við Johnny Hillwalker:) þann hressa kappa hehe.. ég hef rölt með honum 2-3 sinnum... Signý.. fórum við með honum? Ég man það ekki einu sinni haha, fyrst hann er ekki orðinn þreyttur á þessu eftir að gera þetta 3svar í viku allt árið þá er ég það ekki heldur;)

ætla að reyna að blogga eitthvað úr símanum.. annars verður alveg hægt að hafa samband við mig í síma eða e-mail (sjá hægra megin á síðunni), ekki hika við það :)

3 comments:

Anonymous said...

Verður maður ekki að fá sér kobe beef í kobe?

Hildur Jóna said...

Hei, ég man eftir Johnny :-)
og að taka vitlausa lest á leiðinni frá Nara, það var hressandi...

Signy said...

jú við hittum johnny..... mannstu ekki með stórum hóp af könum.. :D