Thursday, November 27, 2008

Friday, November 21, 2008

Kolkrabbaborgari

Eg og risa kolkrabbabolla

Thursday, November 20, 2008

I glugga hja hargreidslustofu.

og btw er e-r ad skoda tetta crap hja mer??

"we have to make it!"

TAKOYAKI! :)

DENIED!

Debra og Kujo sitjandi vid Nigetsudo ad raeda um hvernig japanskur buddismi throadist fra kinverskum buddisma.

Wednesday, November 19, 2008

Tar sem voru apar hlaupandi um, "danger, do not look monkey in eye"

Utsyni yfir Kyoto

Villtar i bambusskogi

Vaemin

Vid Tenryuji hof. Gardurinn var ekkert sma fallegur.

Tuesday, November 18, 2008

A Nishiki matarmarkadnum

Kyoto

UNKO!

Presturinn ad henda theim a eldinn. Tad voru orugglega um nokkur hundrud.

Athofn i Fushimi Inari tar sem verid var ad brenna baenaprik

Fannst eg ykt fullordin ad geta drukkid heitt kaffi ur dos. Frekar gay kaffi samt.

Kujo ad njota haustlitanna

Monday, November 17, 2008

ice cream soda?

Kujo litli a kul vini

Merry christmas!

Sunday, November 16, 2008

Komnar til Kyoto kl 6 eftir 7 tima rutuferd. Hressleiki er ordid!

Maettar i rutuna! Fengum innisko til ad nota hahaha!

Gone to Kyoto


Ég er farin í smá ferðalag með Debru í nokkra daga.. fer í kvöld með næturrútu til Kyoto sem tekur 8-9 tíma (stuuuð!) og verðum þar í 3 nætur og 2 nætur í Osaka. Ætlum að skoða okkur um í Kyoto og kíkja á haustlaufin og kíkja líka til Nara og Kobe.

Ég er jafnvel að hugsa um að endurnýja kynnin við Johnny Hillwalker:) þann hressa kappa hehe.. ég hef rölt með honum 2-3 sinnum... Signý.. fórum við með honum? Ég man það ekki einu sinni haha, fyrst hann er ekki orðinn þreyttur á þessu eftir að gera þetta 3svar í viku allt árið þá er ég það ekki heldur;)

ætla að reyna að blogga eitthvað úr símanum.. annars verður alveg hægt að hafa samband við mig í síma eða e-mail (sjá hægra megin á síðunni), ekki hika við það :)

ammmæli

Jæja ég gat ekki flúið það að verða eldri og er orðin 26 ára... sem er ágætt bara jájá;)
Stelpurnar sem ég bý með voru svo krúttlegar að halda óvænt afmæli fyrir mig kvöldið áður sem var voða næs og skemmtilegt.

Ég með afmæliskortið mitt 


Ray og Yukari að elda Okonomiyaki.. gékk pínu brösulega að flippa því við:) 


Ray, Akiko, Cori og Debra 


Yukari, Ray, Akiko og Cori 


Njomm njomm njomm! 


Debra kom með slatta af ís handa okkur! :) 


Svo fékk ég líka afmælisköku (stendur til hamingju með afmælið Eyrún á dæminu) 


Debra gaf mér svo líka 2,7 lítra af Viskí í plastbrúsa.. smá einkadjók 


 


Ég, Debra og Ieva 

Wednesday, November 12, 2008

Friday, October 31, 2008

Thursday, October 30, 2008

Núðlur


Extra breiðar núðlur. Var frekar erfitt að borða þær því þær voru svo þungar! var alltaf að missa þær oní skálina aftur og skvetta útum allt :) 

Wednesday, October 29, 2008

Monday, October 27, 2008

Haustbolla


oh pretty... 

Friday, October 24, 2008

Halloween

Jei föstudaguuuur! Þessi vika var svo yfirmáta leiðinleg og yfirþyrmandi að ég er mjög ánægð að hún sé búin:)
Sem betur fer var hún ekki eintóm leiðindi því við ákváðum að hafa smá Halloween party dinner við fjórar sem búum saman í tilefni þess að það er Halloween í næstu viku. Japanir taka þær hátíðir sem þeim finnst skemmtilegar þó þær tengist ekkert endilega trú þeirra eða menningu (t.d. halda þeir upp á jól.. skrítin jól en samt..) og gera eitthvað í tilefni þeirra og er Halloween eitt af þeim. Bara afsökun til að halda partý í næstu viku og auðvitað ekkert nema gott um það að segja:)
Yukari var svo myndarleg að elda þessa æðislega góðu graskerssúpu handa okkur og ýmislegt fleira. Hún keypti líka einkar skemmtilega hatta sem hún lét okkur vera með og við sátum þarna deyjandi úr hlátri því þetta var eitthvað svo skemmtilega hallærislegt.

Skreytt og allt 


Yukari er svo sæt :) 


Eyrún búálfur 


Ray, Akiko og ég 
Við ætluðum að vera ótrúlega eðlilegar en Akiko gat ekki hætt að brosa


Ég sprakk úr hlátri þegar ég sá þessa mynd, afhverju eru þær svona krúttlegar með hattana en ég ekki? => stór haus hahaha.. :) 

Thursday, October 23, 2008

SVÖNG

Klukkan er að verða hálf tíu og ég er ekki ennþá búin að borða kvöldmat... ætlaði út í búð eftir skóla en þar sem það byrjaði að rigna ákvað ég að bíða þangað til hún hætti eða allavega minnkaði... en nei... það hættir bara ekkert að rigna.

Búðin sem ég ætla í er allavega um 10 mín í burtu á hjóli og ekki á ég regnföt og glætan að ég nenni að labba með regnhlíf þessa leið og með vörur til baka.

Ég gældi við það í smástund að taka Japanann á þetta og actually hjóla með regnhlíf... en ég hef ekki alveg masterað þá tækni ennþá þannig ég ákvað að hætta ekki lífi mínu í þetta skiptið með mitt skerta þrívíddarskyn.

Japanir geta gert ýmislegt meðan þeir hjóla.. halda á regnhlíf eða jafnvel að skrifa sms eða tala í símann... (oh þeir eru svo kúl...)

Tæknin við að halda á regnhlíf er samt sú að hún þarf að halla pínu fram á við til að vindurinn taki ekki í .. en ekki of mikið til að maður sjái nú fram.. svo er samt laaangbest að hafa glæra regnhlíf því þá sér maður hvort eðer í gegnum hana.

Gott dæmi um fullkoma tækni við að hjóla með regnhlíf

En jæja.. ætli ég banki ekki bara upp á hjá einhverjum í þetta skiptið og betli mat :)