Thursday, November 27, 2008
Friday, November 21, 2008
Thursday, November 20, 2008
Monday, November 17, 2008
Sunday, November 16, 2008
Gone to Kyoto
Ég er farin í smá ferðalag með Debru í nokkra daga.. fer í kvöld með næturrútu til Kyoto sem tekur 8-9 tíma (stuuuð!) og verðum þar í 3 nætur og 2 nætur í Osaka. Ætlum að skoða okkur um í Kyoto og kíkja á haustlaufin og kíkja líka til Nara og Kobe.
Ég er jafnvel að hugsa um að endurnýja kynnin við Johnny Hillwalker:) þann hressa kappa hehe.. ég hef rölt með honum 2-3 sinnum... Signý.. fórum við með honum? Ég man það ekki einu sinni haha, fyrst hann er ekki orðinn þreyttur á þessu eftir að gera þetta 3svar í viku allt árið þá er ég það ekki heldur;)
ætla að reyna að blogga eitthvað úr símanum.. annars verður alveg hægt að hafa samband við mig í síma eða e-mail (sjá hægra megin á síðunni), ekki hika við það :)
ammmæli
Jæja ég gat ekki flúið það að verða eldri og er orðin 26 ára... sem er ágætt bara jájá;)
Stelpurnar sem ég bý með voru svo krúttlegar að halda óvænt afmæli fyrir mig kvöldið áður sem var voða næs og skemmtilegt.

Ég með afmæliskortið mitt

Wednesday, November 12, 2008
Friday, October 31, 2008
Thursday, October 30, 2008
Wednesday, October 29, 2008
Monday, October 27, 2008
Friday, October 24, 2008
Halloween
Jei föstudaguuuur! Þessi vika var svo yfirmáta leiðinleg og yfirþyrmandi að ég er mjög ánægð að hún sé búin:)
Sem betur fer var hún ekki eintóm leiðindi því við ákváðum að hafa smá Halloween party dinner við fjórar sem búum saman í tilefni þess að það er Halloween í næstu viku. Japanir taka þær hátíðir sem þeim finnst skemmtilegar þó þær tengist ekkert endilega trú þeirra eða menningu (t.d. halda þeir upp á jól.. skrítin jól en samt..) og gera eitthvað í tilefni þeirra og er Halloween eitt af þeim. Bara afsökun til að halda partý í næstu viku og auðvitað ekkert nema gott um það að segja:)
Yukari var svo myndarleg að elda þessa æðislega góðu graskerssúpu handa okkur og ýmislegt fleira. Hún keypti líka einkar skemmtilega hatta sem hún lét okkur vera með og við sátum þarna deyjandi úr hlátri því þetta var eitthvað svo skemmtilega hallærislegt.

Thursday, October 23, 2008
SVÖNG
Klukkan er að verða hálf tíu og ég er ekki ennþá búin að borða kvöldmat... ætlaði út í búð eftir skóla en þar sem það byrjaði að rigna ákvað ég að bíða þangað til hún hætti eða allavega minnkaði... en nei... það hættir bara ekkert að rigna.
Búðin sem ég ætla í er allavega um 10 mín í burtu á hjóli og ekki á ég regnföt og glætan að ég nenni að labba með regnhlíf þessa leið og með vörur til baka.
Ég gældi við það í smástund að taka Japanann á þetta og actually hjóla með regnhlíf... en ég hef ekki alveg masterað þá tækni ennþá þannig ég ákvað að hætta ekki lífi mínu í þetta skiptið með mitt skerta þrívíddarskyn.
Japanir geta gert ýmislegt meðan þeir hjóla.. halda á regnhlíf eða jafnvel að skrifa sms eða tala í símann... (oh þeir eru svo kúl...)
Tæknin við að halda á regnhlíf er samt sú að hún þarf að halla pínu fram á við til að vindurinn taki ekki í .. en ekki of mikið til að maður sjái nú fram.. svo er samt laaangbest að hafa glæra regnhlíf því þá sér maður hvort eðer í gegnum hana.
En jæja.. ætli ég banki ekki bara upp á hjá einhverjum í þetta skiptið og betli mat :)

Subscribe to:
Posts (Atom)