Wednesday, October 01, 2008

Ólystugt...

 

Við sem erum í skólanum núna er svo óheppin að það er búið að rífa mötuneytið til að byggja nýtt sem verður tilbúið árið 2010! Þangað til eru tvö hallærismötuneyti ef mötuneyti skal kalla á skólalóðinni. Annað er bara venjuleg sjoppa sem hægt er að kaupa samlokur og onigiri. Á hinum staðnum er líka hægt að kaupa samlokur og dót en þar kemur líka heitur/volgur matur frá einskonar veisluþjónustu í hádeginu sem er semí ágætur, jaa allavega fyrir 300 kr, en vegna laaangra raða nenni ég aldrei þangað í hádeginu. Og svo er hægt að kaupa kalda matarbakka... þetta er mynd af einum svona bakka í dag. Ég kom sá þetta og fór...

2 comments:

Signy said...

??!??!... hvað er þetta?? Hamborgari á hrísgrjónum?? ó sweet jesus!!!

"Im afraid I will get this burger pregnant!"

Þórunn said...

Mér finnst þetta líta út eins og lifrarpylsa á hrísgrjónum...